úff.. langt um liðið síðan ég skrifaði eitthvað skemmtilegt á
þessa síðu.. eða bara skrifaði eitthvað.. maður er bara að vinna
eins og skepna og kemst ekkert í tölvuna góðu..
sem er svo sem í
lagi..
En mér heyrist að allir þeir sem heimsæki þessa síðu séu
í einhvers konar átaki..
hehe.. á maður ekki bara að vera sáttur
eins og maður er eða verður? hmm?
Allaveganna þá var bara tekið djamm á þessa helgi eins og
síðustu þrjár..
og ég held að við haukapjakkar þurfum að halda
eitt kveðjupartý fyrir hermennina Villa og Kiddz.. Ekki það að þeir
verða eitthvað lengi í burtu, aðeins 22 daga.. þá verður maður
alltaf að hafa eitthvað tilefni til þess að skála ekki satt?
Maður á kannski líka eftir að sakna ykkar smá... 
En anyways ég er með eina góða sögu.. Það var þannig að ég og
Thelma Bomba vorum í sundi að skipulegga næsta Séð og heyrt blað og
aldrei hefur heyrst svona mikið af slúðri.. Við samkjöftuðum í c.a
2 og hálfan klukkutíma (það kallar maður mikið af slúðri) ég meina
við höfðum ekki hisst í rúma 3 daga..
En nema hvað einhver
ógeðsleg dónakellling segir við okkur:
DK: Stelpur eru þið með munnræpu? Þið kjaftið og kjaftið?
TH: Já finnst þér ekki gaman að hlusta á okkur?
DK: NEI! þetta er alveg út í hött, mér er ofboðið!
og ríkur mín ekki bara upp úr pottinum í algjörri fýlu..
HALLÓ..! er fólk ekki í lagi? Vitiði hvað sumir myndu borgar miki
fyrir að fá að hlusta á mig og bombuna tala um slúður í tvo tíma..
piff! Gamalt fólk..! ekki alveg í lagi skoo!
Ég var allaveganna mjög hneyksluð og það munaði litlu að ég
vildi fá endurgreidda sundferðina.. 
Til hvers eru sundlaugar? Til þess að slaka á og tala
saman? Ef henni líkaði illa við okkur þá átti hún bara að
drulla sér eitthvað annað.. !!!
En allaveganna ég verð að fara að lúlla núna.. Hlaða
batteríin..
Þangað til næst.....
Hvenær sem það verður..! 
Pjálí 
Og meðan ég man Til hamingju með afmælið Kjarri minn :* 